Forseti Alþingis gerir ráð fyrir að það takist að ljúka þingstörfum í dag. Meðal mála sem stefnt er að því að klára eru fjár- og fjáraukalög, húsnæðiskaup fyrir Grindvíkinga, forgangur til raforku og veiting ríkisborgararéttar.
Forstjóri Icelandair segir að skaði fyrirtækisins vegna fyrirhugaðrar kjaradeilu flugumferðarstjóra gæti numið allt að milljarði króna .
Fjölmenn mótmæli voru í Tel Aviv höfuðborg Ísraels í gærkvöld eftir að tilkynnt var að þrír gíslar Hamas-samtakanna hefðu fallið fyrir slysni í árás Ísraelsmanna á Gaza. Þrýstingur eykst enn á að fá þá gísla lausa sem eftir eru.
Lögmaður ekkju Eritríumannsins Andemarians segir afsökunarbeiðni Landspítalans skipta ekkju hans miklu máli. Hann segir líklegt að miskabætur vegna andlát mannsins hlaupi á hundruðum milljóna.
Efnahagsástandið virðist hafa áhrif á söfnun hjálparstofnana fyrir jólin. Þótt sumar finni fyrir samdrætti segja aðrar að þegar kreppi að sé fólk meðvitaðra um þá sem minna mega sín.
Erfitt getur verið fyrir unga bændur að taka við búi foreldra, sem þurfa vegna kynslóðaskipta að greiða stórar fjárhæðir í fjármagnstekjuskatt vegna söluhagnaðar.
Rudy Giuliani, sem var lögmaður Donalds Trump í viðleitni hans til að ógilda úrslit forsetakosninganna 2020, var í gær dæmdur til að greiða tveimur starfsmönnum kosninganna háar skaðabætur. Hann segir dóminn ósanngjarnan gagnvart sér.
Ásrún Brynja Ingvarsdóttir segir hádegisfréttir.