Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 5. ágúst 2026

Allri áhöfn Banderos verður vísað úr landi og fær ekki að koma aftur til landsins. Fólkið er frjálst ferða sinna fram að brottvísun.

Úkraínuforseti segir tafir á afhendingu loftvarnakerfa hafa leitt til meira mannfalls í árásum næturinnar en ella. Úkraínuher tókst ekki að skjóta niður eitt einasta flugskeyti Rússa.

Afbrotafræðingur segir of mikla athygli á uppruna brotamanna ala á fordómum. Heitar umræður um uppruna fóru af stað eftir að ungir menn voru handteknir með leikfangabyssu á Akureyri um helgina.

Hluti eldflaugar SpaceX brotlenti á tunglinu í morgun. Vísindamenn segja áreksturinn eiga eftir að skilja eftir sig fjögurra metra djúpan gíg.

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu segir þátttöku í utankjörfundaratkvæðagreiðslu fyrstu dagana meiri en við var búist. Yfir 4.200 hafa þegar skilað inn atkvæði sínu.

Vika er í almyrkva á sólu og undirbúningur í fullum gangi, meðal annars á Vesturlandi og í Vesturbyggð. Sveitarstjórar í Snæfellsbæ og Vesturbyggð segja óþægilegt að vita ekki hversu margir séu væntanlegir.

Íslandsmótið í golfi hefst á morgun og stendur til sunnudags. Lýsandi RÚV á mótinu segir fjölmarga kylfinga líklega til sigurs, bæði í karla- og kvennaflokki.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,