Lögregla hefur handtekið mann sem talinn er viðriðinn árásina á gleðigönguna í Berlín í gærkvöld. Ein kona lést og á annan tug eru særð, eftir að sendibíl var ekið inn í gönguna. Lögregla leitar enn að manninum sem talinn er hafa ekið bílnum.
Hundrað daga tímabil, sem meirihlutinn í borgarstjórn gaf sér til að ljúka þrjátíu og einu verkefni er meira en hálfnað. Um þriðjungi verkefnanna er lokið, borgarstjóri heitir því að öllum verði lokið á tíma.
Íbúar sex bæja nærri Bordaux í Frakklandi þurftu í gærkvöld að yfirgefa heimili sín vegna skógarelda. Yfir 330 þúsund hafa þurft að flýja elda í Frakklandi og á Spáni síðustu daga.
Leit að svæði eða húsnæði undir brottvísunarstöð stjórnvalda á Reykjanesskaga stendur enn. Suðurnesjabær hafnaði fyrir helgi beiðni félags um afnot af Rockville-svæðinu á Miðnesheiði.
Flavio Bolsonaro, sonur Jairs Bolsonaro fyrrverandi forseta Brasilíu, verður frambjóðandi Frjálslynda flokksins í forsetakosningum í haust. Faðir hans er enn í stofufangelsi fyrir valdaránstilraun.
Björgunarsveitarmenn sáu til þess að vanbúnir Bræðslugestir sváfu vel í nótt. Þrátt fyrir slæmt veður segir skipuleggjandi að tónleikarnir hafi gengið vel.