Fertugur Íslendingur sem hefur fengið dóm fyrir manndráp er á meðal þeirra sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna kókaínsmygls til Straumsvíkur.
Vonir dvína dag frá degi um að finna fólk á lífi í húsarústum í Venesúela, viku eftir jarðskjálftana mannskæðu.
Formaður Verkalýðsfélags Akraness furðar sig á að atvinnuvegaráðherra gagnrýni starfsmenn Hvals í stað þess að fordæma hótanir dýraverndarsamtaka.
Lögregla rannsakar andlát konu sem féll fram af svölum á hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi á sunnudag.
Rammi fjárlaga næsta árs var samþykktur í ríkisstjórn í morgun, stefnt er að hallalausum fjárlögum í fyrsta skipti frá 2019.
Barna- og menntamálaráðherra telur rangt að ekki hafi verið hlustað á ungmenni sem tóku þátt í vinnustofu um símabann og aldurstakmark á samfélagsmiðlum.
Sveitarstjóri Múlaþings segir fjármagn skorta til viðhalds vega á Austurlandi. Ástand Axarvegar sé óviðunandi.
Hátt í tvö þúsund drengir eru komnir til Akureyrar og keppa í fótbolta frá morgni til kvölds fram á laugardag.