Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Venesúela þar sem hátt í 170 hafa fundist látnir og nærri þúsund slasaðir eftir öfluga jarðskjálfta sem riðu yfir í gærkvöld.
Einn sakborninga í Höfðatorgsmálinu mætti ekki fyrir dóm þegar málið var þingfest í morgun. Verjandi segir hann vera í Jórdaníu. Hinir tveir neituðu sök.
Hitaviðvaranir eru í gildi í um fimmtán ríkjum á meginlandi Evrópu vegna hitabylgju undanfarinna daga. Þriggja ára barn lést úr ofhitnun nærri París. Barnið var lokað inni í bíl.
Læknir segir fólk í mjög miklum hita verða að huga að því að kæla líkamann og drekka nóg. Ef það fær einkenni hitaslags er mikilvægt að leita læknisaðstoðar strax.
Ferðamenn gætu lent í vandræðum við að ná í Neyðarlínuna á Íslandi vegna útfösunar á tvö G og þrjú G símkerfum landsins. Til skoðunar er að bæta við nýju neyðarnúmeri sem allir geta hringt í.
Víðir Reynisson þingmaður Samfylkingar segir flokksmenn hafa gengið sátta frá fundi gærdagsins þar sem lög um brottvísunarstöð voru til umræðu.
Jóns Sigurðssonar verður minnst á Þingvöllum í kvöld þegar Guðni Ágústsson stendur fyrir Þingvallahátíð.
Suður-Afríka er komin upp úr riðlakeppni HM í fyrsta sinn eftir sigur á Suður-Kóreu í nótt. Í dag mætast Japan og Svíþjóð í spennandi leik þar sem sæti í næstu umferð er í húfi.