Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 11. júní 2026

Hópur fólks í Samfylkingunni mótmælir nýsamþykktum lögum um brottvísunarstöð og krefst þess þeim verði ekki framfylgt. Nýkjörinn borgarfulltrúi flokksins segir rangt frelsissvipta börn.

Maður er í haldi grunaður um hafa stungið tvo menn á knæpu í miðborg Reykjavíkur í gær.

Forsætisráðherra Noregs segir mikilvægt samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið verði áfram í fullu gildi, óháð því hvað verður um mögulegar aðildarviðræður Íslands.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varar við minni hagvexti hér á landi og vaxandi verðbólgu.

Skrifstofur Hagkaupa í Skútuvogi voru rýmdar vegna hótunar í dag.

Íranar segjast hafa lokað fyrir siglingar um Hormússund. Árásir Bandaríkjamanna og Írana héldu áfram í nótt. Þrír indverskir sjómenn voru drepnir í árás Bandaríkjamanna úti fyrir ströndum Ómans.

Fyrri hluta kjarnaborana vegna rannsóknar á jarðgöngum til Vestmannaeyja er lokið. Það ætti skýrast síðar í ár hve raunhæf gangagerðin er.

Enn fjölgar ríkjum sem vilja banna börnum vera á samfélagsmiðlum. Ríkisstjórn Kanada kynnti frumvarp þess efnis í gær.

Heimsmeistaramót karla í fótbolta hefst í kvöld á Azteca-velli í Mexíkóborg.

Birt

11. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,