Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 10. júní 2026

Enn er ósamið um frestun þingfunda á Alþingi og nokkur stór mál standa út af. Samkvæmt starfsáætlun fara þingmenn í sumarfrí á föstudag en eldhúsdagsumræður eru í kvöld.

Ísland er friðsælasta land í heimi nítjánda árið í röð en ófriður eykst á heimsvísu.

Rússland er byggja upp hernaðargetu við norður- og austurjaðar NATO, samkvæmt nýrri rannsókn norrænna fjölmiðla. Herstöðvar hafa verið stækkaðar og innviðir búnir undir fjölgun hermanna.

Útlit er fyrir blíðskaparveður næstu daga. Hiti getur náð tuttugu stigum á suðvestanverðu landinu á morgun. Sumarið er byrjað þetta er þó skammgóður vermir, segir veðurfræðingur.

Fimmti hver íbúi á Íslandi er innflytjandi og hefur hlutfall þeirra nær þrefaldast á fimmtán árum.

Ríkisendurskoðun telur farsældarlög hafi vakið óraunhæfar væntingar. Í lögunum er ekkert fjallað um hvernig á auka þjónustu, stytta bið eða bæta úrræði.

Maður sem varð fyrir hrottalegri árás í Belfast á Norður-Írlandi, missti annað augað. Óeirðir hafa brotist út á Norður-Írlandi eftir árásina.

Birt

10. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,