Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins leggur til að Rússum sem hafa tekið þátt í hernaðaraðgerðum í Úkraínu verði bannað að koma inn á Schengen-svæðið. Þetta er í samræmi við áskorun dómsmálaráðherra Íslands og tíu annarra Evrópuríkja.
Rússneskir hermenn og málaliðar voru settir um borð í svokölluð skuggaflotaskip til að tryggja að áhafnir færu eftir fyrirmælum og hlýddu ekki skipunum frá evrópskum eftirlitsstofnunum; alþjóðleg rannsókn leiðir þetta í ljós.
Leigusali segist smeykur við að leigja út eign sína vegna tjóns sem leigjandi olli honum, leigjandinn var í íbúðinni í sex mánuði án þess að borga.
Ágætis gangur er í samningaviðræðum um þinglok. Helsti ásteytingarsteinninn er frumvarp um lagareldi.
Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir samning við Íran í augsýn á næstu dögum. Hann hefur minnst 37 sinnum á síðustu tveimur mánuðum sagt að samkomulag sé í nánd.
Nærri sjö hundruð manns hafa verið gripnir við akstur undir áhrifum fíkniefna það sem af er ári. Aðalvarðstjóri á höfuðborgarsvæðinu segir að mörgum finnist ekki tiltökumál að aka undir áhrifum.
Umsóknum um nám við Háskólann á Akureyri fjölgar mikið milli ára, sérstaklega á meistarastigi. Sveigjanleiki námsins hentar nútímasamfélagi að sögn rektors
Kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson varð í gærkvöld fyrsti íslenski karlinn til að vinna sér inn keppnisrétt á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi.