Stýrivextir voru hækkaðir úr 7,5 prósentum í 7,75 í morgun. Þetta er önnur hækkunin í röð. Aðilar vinnumarkaðarins óttast að vextir haldi áfram að hækka.
Oddviti Sjálfstæðisflokksins sér ekki fram á viðræður um meirihluta við aðra flokka en Miðflokkinn, Viðreisn og Framsókn. Í Hafnarfirði byrjuðu í morgon formlegar viðræður um meirihluta Framsóknar og Sjálfstæðisflokkinn.
Sjálfstæðisflokknum er hafnað í viðræðum í Fjallabyggð og á Dalvík þar sem þeir hafa verið í meirihluta síðustu ár.
Engar meiriháttar ákvarðanir virðast hafa verið teknar á leiðtogafundi forseta Kína og Rússlands í Beijing, en búist var við því að Rússar myndu nota fundinn til að þrýsta á um aukinn útflutning á gasi til Kína.
Síðari umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið er á dagskrá Alþingis í dag að loknum óundirbúnum fyrirspurnatíma.
Lokun þjóðvegar eitt vegna viðhalds við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum hefur áhrif á ferðaþjónustuna - sem hefði viljað að verkið yrði unnið hraðar.
Sólin skín á suðvesturhorni landsins. Gestir Sundhallarinnar í Reykjavík geta notið hennar á nýjum sólbaðssvölum.