Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 19. maí 2026

Innlend kortanotkun dróst verulega saman í apríl. Greiningardeildir bankanna spá hækkun stýrivaxta á morgun.

Lögreglan á Suðurnesjum gerði vitni eyða upptöku af handtöku á Suðurnesjum í gær. Lögmaður telur aðgerðir lögreglu ólögmætar.

Þreifingar um myndun meirihluta í sveitarstjórnum halda áfram í dag. Sjálfstæðismenn í Reykjavík ráða ráðum sínum eftir Hildur Björnsdóttir ræddi við oddvita hinna framboðanna í gær.

Forsætisráðherrar Norðurlandanna og Indlands hittast í Ósló til ræða aukið samstarf milli landann, þriðja leiðtogafundi þeirra á átta árum.

Svíar ætla þrefalda loftvarnagetu með kaupum á fjórum frönskum freigátum. Það verða mestu vopnakaup Svía frá því á síðustu öld.

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu slökkti eld í Bjarmalandi í Fossvogi klukkan hálf tólf. Eldurinn kviknaði í geymslu í íbúðarhúsi.

Leiðtogi Venstre í Danmörku, tilkynnti í morgun hann vildi mynda þriggja flokka minnihlutastjórn með stuðningi allra í bláu blokkinni og flokki Lars Løkke Rasmussen, Moderaterne. Rasmussen hefur ekki samþykkt styðja slíka stjórn.

Vladimír Pútín forseti Rússlands kemur í opinbera heimsókn til Kína í dag. Aðeins eru nokkrir dagar síðan Donald Trump Bandaríkjaforseti var í heimsókn þar í landi.

Formaður Landssambands smábátaeigenda segir strandveiðar fara vel af stað en áhyggjur vofi þó yfir um lengd tímabilsins og hvort nægjanlegt aflamagn verði veitt.

Grindavík er Íslandsmeistari karla í körfubolta eftir sigur á Tindastóli á Sauðárkróki í gærkvöldi.

Birt

19. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,