Tveir farþegar af skipinu Hondiusi hafa greinst með hantaveiru eftir að þeir komu til síns heima. Fyllstu varúðar er gætt við flutning farþeganna og litlar líkur eru taldar á faraldri.
Fjórir karlmenn á fertugsaldri voru í dag dæmdir í 20 mánaða til fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot.
Þingmaður Verkamannaflokksins ætlar að að knýja fram leiðtogakjör í haust með undirskriftasöfnun. Forsætisráðherrann Keir Starmer ávarpaði flokksmenn í morgun og sagðist vita að fólk væri vonsvikið með stöðu landsins.
Sjöunda árið í röð hefur ekki tekist að fá fólk í sumarafleysingar í þjónustu við aldraða í Skagafirði.
Mótmæli vegna þátttöku Rússlands hafa sett mark á Feneyjatvíæringinn í myndlist. Gestur segir augljóst að alls staðar þar sem þjóðir keppi sé mikil spenna vegna stöðu alþjóðastjórnmála.
Skipuleggjendur Eurovision hafa áminnt ísraelska keppandann fyrir auglýsingar á samfélagsmiðlum, þar sem fólk er hvatt til að kjósa framlag Ísraels.
Áhugi íslenskra kvenna á þjóðbúningum hefur aukist á síðustu árum, segir formaður Þjóðbúningafélags Íslands. Aðsókn á þjóðbúninganámskeið er mikil en kennararnir fáir.