Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 29. apríl 2026

Stór hluti vændismála fellur undir mansal, í því felast grafalvarleg mannréttindabrot og afar aðkallandi er koma í veg fyrir áframhaldandi eða versnandi þróun, segir dósent við lagadeild HR.

Samfélagsmiðlar og klám móta náin sambönd ungmenna. Fulltrúar unga fólksins á þingi Barnaheilla vilja aukna áherslu á forvarnir.

Meta, fyrirtækið sem á Facebook og Instagram, framfylgir ekki eigin reglum til hindra aðgang barna, segir Evrópusambandið. Rannsókn á þessu hefur staðið í tvö ár á grundvelli reglugerðar um netfyrirtæki. Mikilvægt er innleiða hana hér segir atvinnuvegaráðherra.

Ársverðbólga hjaðnaði lítillega í apríl og var 5,2 prósent, í mælingu Hagstofunnar. Verðbólga jókst fram því frá nóvember.

Formaður Félags fasteignasala segir mikilvægt lækka álögur á byggingarmarkaði til tryggja framboð á nýjum íbúðum. Húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar taki ekki á vandanum á fasteignamarkaði.

Ræðu Karls þriðja Bretakonungs á Bandaríkjaþingi í gær var vel tekið. Erlendir miðlar segja konunginn hafa sýnt meistaratakta með áherslu á mikilvægi sambands Bretlands og Bandaríkjanna og hvatt þau til standa með vestrænum bandamönnum.

Enn er óljóst hvenær framkvæmdum við nýjan kafla á Hringveginum um Hornafjarðarfljót, lýkur. Veður setti strik í reikninginn.

66 ára gamalt markamet var slegið í undanúrslitaleik PSG og Bayern München í Evrópukeppni í fótbolta.

Birt

29. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,