Flestum leiðum að höfuðborgarsvæðinu hefur verið lokað vegna vonskuveðurs og fjölmargir vegir á óvissustigi. Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst og miklar raskanir eru á millilandaflugi.
Appelsínugul viðvörun tók gildi á Suðausturlandi klukkan 11:00 og klukkan 14:00 verða appelsínugular viðvaranir í gildi á öllu sunnanverðu landinu.
Tillaga um vopnahlé milli Írans og Bandaríkjanna er sögð til skoðunar á báða bóga. Vopnahléið er sagt geta komið til framkvæmda strax í dag.
Hápunktur Artemis II leiðangursins er í dag þegar Orion-farið með fjóra geimfara innanborðs flýgur umhverfis tunglið í meiri fjarlægð en nokkur maður hefur ferðast áður.
Stórir bakhjarlar hafa dregið til baka stuðning við tónlistarhátíð í Lundúnum sem fer fram í sumar vegna tónlistarmannsins Kanye West, sem kemur þar fram. Ýmsir baráttuhópar gegn gyðinahatri hafa lýst undrun á bókuninni og jafnvel krafist þess að hann fái ekki að koma inn í landið.
32-liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta lýkur í dag með fimm leikjum. Veðurhamurinn sem gengur yfir hefur þó sín áhrif á viðureignirnar.