Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 20. mars 2026

Þrír slösuðust, þar af einn alvarlega, þegar sprenging varð í kornturni Fóðurblöndunnar í Sundahöfn í Reykjavík í morgun. Sprengingin var það öflug stór hlut turnsins þeyttist burt. Áfallamiðstöð var komið upp í nágrenninu.

Mette Marit, krónprinsessa Noregs, segir Jeffrey Epstein hafa vafið sér um fingur. Hún sjái mikið eftir hafa dvalið í húsi hans á Florida, einkum vegna þeirra sem hann braut á.

Öllu flugi um Keflavíkurflugvöll og Reykjavíkurflugvöll í dag hefur verið aflýst. Gul viðvörun er í gildi um landið vestan og sunnanvert og lítið ferðaveður.

Umboðsmaður barna hefur verulegar áhyggjur af því börnum, sem sækja um alþjóðlega vernd, standi ekki leikskóli, frístund eða tómstundir til boða. Þótt það samræmist útlendingalögum gangi það gegn Barnasáttmálanum.

Fyrstu íbúðarhúsin byggð alfarið úr íslensku timbri rísa brátt í Fljótsdal. Stórir og sterkir bolir sem fengust þegar skógur var felldur í Öskjuhlíð í Reykjavík verða nýttir í burðarvirki húsanna

Íslenska karlalandsliðið í handbolta spilar í Magdeburg Þýskalandi í riðlakeppni HM í janúar. Liðið tapaði fyrir Svíum í æfingaleik í gærkvöld.

Birt

20. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,