Stórt snjóflóð féll skammt utan við Siglufjörð í nótt, það fór yfir veginn og út í sjó. Mikil ofankoma hefur verið á Siglufirði og Ólafsfirði síðustu daga og óvissustig vegna snjóflóðahættu í gildi.
Um fimm þúsund bandarískir hermenn eru sagðir vera á leið til Mið-Austurlanda, mögulega til að ná yfirráðum yfir eyju úti fyrir Íran, sem sögð er lífæð íranska byltingarvarðarins. Bandaríkjamenn gerðu loftárásir á eyjuna í nótt.
Íbúar í úkraínsku borginni Kherson kalla drónahernað Rússa í borginni mannaveiðar. Drónarnir eru notaðir til að elta fólk uppi á götum og varpa á það sprengjum.
Ekkert verður af flutningi Listaháskólans í húsnæði Tækniskólans í Reykjavík. Rektor segir tillögu að nýju húsnæði í bígerð.
Nemendur við Háskólann á Akureyri geta ekki flutt inn í nýjar stúdentaíbúðir á árinu, eins og til stóð. Yfir áttatíu hafa verið á biðlista síðustu misseri og skiptinemar hafa dvalið á gistiheimilum.
Grindavík varð í gærkvöldi deildarmeistari karla í körfubolta eftir sigur á Stjörnunni. Tvær umferðir eru enn eftir af deildarkeppninni en forskot Grindvíkinga slíkt að enginn getur náð þeim.