Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 15. janúar 2025

Brúin yfir Ferjukotssíki í Borgarfirði gaf sig í morgun vegna vatnavaxta og klaka. Ferðamenn lentu í vandræðum í vatnselg á Holtavörðuheiði í nótt. Björgunarsveitarmaður synti til þeirra í öryggislínu til bjarga þeim af þaki bíls þeirra.

Lögreglustjórinn á Norðurlandi Eystra hefur opnað aðgerðarstjórn á Húsavík til undirbúa viðbrögð við hugsanlegu eldgosi í Bárðarbungu. Rólegt var við Bárðarbungu í nótt.

Samningaviðræður um vopnahlé á Gaza halda áfram í Katar. Ísraelar hafa hert árásir og drepið minnst sextíu og tvo síðasta sólarhring.

Síma- og netsamband niðri á Skagaströnd frá miðnætti og framundir morgun þegar klakastykki ruddi niður bráðabirgðatengingu ljósleiðara yfir á skammt utan við bæinn.

Samningaviðræður kennara við sveitarfélögin halda áfram í dag. Formaður Kennarasambands Íslands segir kröfur þeirra óbreyttar.

Stefnt er setningu Alþingis fyrir mánaðamót. Flokkur fólksins fer með formennsku í flestum þingnefndum.

Matvöruverð hækkaði minna um áramótin en búist var við. Engar vísbendingar eru um frekari hækkanir í janúar, segir verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ.

Hafrannsóknastofnun þarf til rannsaka loðnustofninn, segir formaður Samtaka sjávarútvegsfélaga. Engar loðnuveiðar voru í fyrra.

Ísland hefur leik á heimsmeistaramóti karla í handbolta á morgun og mætir þá Grænhöfðaeyjum.

Frumflutt

15. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,