Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 22. desember 2024

ríkisstjórn leggur áherslu á auðlindagjöld, bæði af fiskveiðum og fiskeldi. Umhverfisráðherra vill dusta rykið af tillögum um rammaáætlun, virkja meira og tryggja almenningi og smærri fyrirtækjum orkuforgang.

Þjóðarakvæðagreiðsla um aðildarviðræður við Evrópusambandið er kynnt á fölskum forsendum mati formanns Miðflokksins. Honum þykir nýr stjórnarsáttmáli rýr í roðinu og þar vanti allar útfærslur.

Prófessor í stjórnmálafræði segir nýja stjórnarandstöðu koma til með verða harðskeytta. Engin verði viðspyrnan frá vinstri þar sem þeir flokkar eigi enga menn á þingi.

Rússlandsher hefur náð nærri 200 þorpum og bæjum í Úkraínu á sitt vald það sem af er ári, síðast tveimur til viðbótar í gær. Skotfæra- og hermannaskortur þjakar Úkraínumenn sem fyrr.

Það fer verða verra ferðaveðrið. Vegir gætu orðið mjög hálir í fyrramálið á meðan snjó og klaka leysir eftir suðaustanstorm sem gengur yfir landið í nótt. Um kvöldið gengur svo á með éljum og hvassviðri.

Til stendur endurvinnslutöð fyrir Kópavog og Garðabæ rísi á Glaðheimasvæðinu við Reykjanesbraut nærri Smáralind. Hún mun leysa af stöðina á Dalvegi sem lokar í September.

Yfir hátíðarnar setja margir landsmenn upp jólatré í stofum sínum. Þeim sem velja hafa lifandi íslensk tré er bent á mögulegt er viðhalda bæði ilm og lit trésins með nokkrum góðum ráðum.

Frumflutt

22. des. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,