Styttri málsmeðferðartími og takmarkaðri aðkoma sveitarfélaga til að hafa áhrif á ákvarðanir um byggingu orkumannvirkja eru hluti af tillögum starfshóps um endurskoðun á lögum um rammaáætlun. Ráðherra segir að tillögurnar geti flýtt mjög uppbyggingu orkumannvirkja.
Liðlega þrítugur maður neitaði sök fyrir dómi í morgun, hann er ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás sem leiddi til dauða vinnufélaga hans í sumarbústað í Árnessýslu í vor.
Átta ríki hafa eða hyggjast á næstu dögum opna sendiráð í Sýrlandi að nýju. Mikið uppbyggingarstarf er framundan í landinu.
Búist er við að Frakklandsforseti útnefni nýjan forsætisráðherra í dag.
Fimmti hver landsmaður er innflytjandi eða af annarri kynslóð innflytjenda. Hæst er hlutfallið á Suðurnesjum en lægst á Norðurlandi.
Íbúi fékk engin svör frá umhverfis- og skipulagssviði borgarinnar í rúm tvö ár, þar til hann kvartaði til Umboðsmanns Alþingis. Embættið átti í stökustu vandræðum með að ná sambandi við starfsmenn borgarinnar.
Innviðaráðuneytið ætlar ekki að blanda sér í persónulegar deilur sem plagað hafa sveitarstjórn Strandabyggðar um nokkurra ára skeið.
Skjaldarmerki Vopnfirðinga með spúandi dreka hefur verið valið það fegursta á Norðurlöndunum. Formaður félags um skjaldamerkafræði segir algengara en marga grunar að Íslendingar taki sér skjaldarmeki. Forsetar lýðveldissögunnar eigi sér persónulegan skjöld og líka frímúrar sem ná hafi ákveðinni tign.
Sveindís Jane Jónsdóttir varð í gærkvöldi fyrsti Íslendingurinn til að skora fjögur mörk í einum leik í Meistaradeild Evrópu.