Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 9. desember 2024

Uppreisnarmenn í Sýrlandi reyna tryggja stöðugleika í landinu. Neyðarfundur verður í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í kvöld vegna Sýrlands.

Nær ekkert fjarskiptasamband er á Skagaströnd eftir ljósleiðari þangað rofnaði í morgun. Aðeins er einn ljósleiðarastrengur er til Skagastrandar og því er talið mikilvægt á koma á hringtengingu svo tryggja megi öruggari fjarskipti.

Umferð er stýrt um hluta þjóðvegar í Öræfum þar sem vatn flæðir yfir veg. Rafmagnstruflanir hafa verið í Mýrdal síðan í nótt vegna vatnsveðurs og erfiðlega hefur gengið tengja varaafl við hluta byggðarinnar.

Formenn þeirra þriggja flokka sem ræða myndun ríkisstjórnar hafa setið á fundi í morgun en ekkert er gefið upp um gang viðræðna. Þingað verður í stærri hópum eftir hádegi.

Landskjörstjórn tilkynnir á morgun úthlutun þingsæta á grundvelli kosningarúrslita. Fundinum hafði upphaflega verið frestað eftir Framsóknarflokkurinn fór fram á endurtalningu í Suðvesturkjördæmi.

Eldgosið við Sundhnúksgíga hefur hjaðnað mjög. Sérfræðingar Veðurstofunnar fljúga dróna yfir gíginn eftir hádegi til kanna hvort þar enn virkni.

Matvælastofnun hefur ekki fundið alifugla smitaða af fuglaflensu, síðan á þriðjudag. Stofnunin er þó enn á neyðarstigi og segir hættuna ekki liðna hjá.

Erfitt hefur reynst finna lausn til tryggja framboð á forgangsorku til heimila, fyrirbyggja skort og hemja verðhækkanir. Skylda þarf raforkuframleiðendur til selja nóg á almennan markað en óljóst er hvernig þeir ættu skipta þeim kaleik á milli sín.

Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, segist ætla náða alla þá sem dæmdir voru fyrir árás á þinghúsið í Washington 6. janúar 2021.

Frumflutt

9. des. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,