Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 28. nóvember 2024

Forseti Úkraínu sakar Rússa um hafa beitt klasasprengjum í árásum á orkuinnviði í nótt. Yfir milljón Úkraínumenn voru rafmagnslausir um tíma eftir árásirnar.

Kjarasamningur Læknafélags Íslands við ríkið var undirritaður í nótt. Í honum felst betri vinnutími og minna álag, segir formaður lækna.

Fylgi Flokks fólksins og Framsóknar eykst í nýrri könnun Maskínu. Fylgi Samfylkingar og Viðreisnar dalar en Samfylking mælist enn stærst.

Kosningalægðin verður fyrr á ferðinni en áður var spáð. Íbúar á norðan- og austanverðu landinu eru hvattir til kjósa utan kjörfundar. Hugsanlega þarf fresta kjörfundi í einhverjum kjördeildum.

Verðbólga er komin undir fimm prósent og hefur ekki verið minni í þrjú ár. Hagfræðingur segir það meðal annars skýrast af lágum flugfargjöldum og útsöludögum

Enn er ósamið við ríflega helming af eigendum níutíu jarða sem Blöndulína þrjú fer í gegnum. Sveitarfélögin fjögur sem línan mun liggja undirbúa kynningu á valkostum fyrir íbúana.

Aðstoðarlandsliðsþjálfari karla segir það stórt fyrir íslenskan handbolta eiga reglulega lið á stórmótum. Hann segir líklegt fyrsti sigur Íslands á EM komi á Evrópumóti kvenna í handbolta hefst í dag.

Frumflutt

28. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,