Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 10. september 2024

Hallinn á ríkissjóði er áætlaður 41 milljarður króna á næsta ári, sem er 16 milljarða minni halli en í ár. Fjármálaráðherra segir heilbrigðis- og velferðarmál í forgrunni.

Stjórnarandstaðan gefur ekki mikið fyrir frumvarpið. Ríkisstjórnin hafi brugðist í efnahagsmálum og frumvarpið minni á kosningabækling.

Alþingi verður sett í dag og verkalýðsfélög hafa boðað til mótmæla á Austurvelli vegna síhækkandi framfærslukostnaðar heimilanna. Forseti ASÍ segir hita í fólki.

Þrjú voru handtekin í tengslum við hnífaárás í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Tvö sæta gæsluvarðhaldi og bíða skýrslutöku, en þriðji hefur verið fluttur á Stuðla.

Heilu fjölskyldurnar þurrkuðust út í árás Ísraelshers á flóttamannabúðir á Gaza í gær. Ísraelsher segir liðsmenn Hamas hafa verið skotmarkið.

Tæknirisarnir Apple og Google þurfa greiða meira en fimmtán milljarða evra í sektir og vangoldna skatta eftir tvo dóma sem Evrópudómstóllinn kvað upp í morgun. Með þessu lýkur áralöngum málaferlum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins gegn þessum fyrirtækjum.

Kuldalegt er um litast víðast hvar á Norður- og Austurlandi og hálka eða snjóþekja er á fjallvegum. Hvít jörð er í Mývatnssveit og aðstæður erfiðar fyrir bændur.

Frumflutt

10. sept. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,