Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 26. ágúst 2024

Tveggja erlendra ferðamanna er enn leitað á Breiðamerkurjökli eftir ís hrundi yfir ferðamenn í gær. Einn er látinn og annar liggur alvarlega slasaður á spítala. Tugir björgunarmanna eru á vettvangi.

Strangari löggjöf þarf um íshella- og jöklaferðir segir varaformaður Félags fjallaleiðsögumanna. Félagið harmar slysið í Breiðamerkurjökli og kallar eftir rannsókn. Slysið verður rætt á ríkisstjórnarfundi á morgun.

Ung stúlka sem varð fyrir stunguárás í miðborg Reykjavíkur um helgina er enn þungt haldin. Sextán ára piltur var úrskurðaður í gæsluvarðhald í gærkvöld, grunaður um hafa stungið stúlkuna og tvö önnur ungmenni.

Hundrað eldflaugum og jafnmörgum drónum var skotið á fimmtán svæði í Úkraínu í nótt og í morgun. Úkraínuforseti biður vinaþjóðir um leyfi til nota langdræg vopn í baráttunni við Rússa.

Fjöldi fólks var á Reykjanesskaga í morgun til virða fyrir sér eldgosið sem hófst á fimmtudag. Enn gýs þar talsvert, þótt heldur hafi dregið úr síðustu daga.

Viðræðum um vopnahlé á Gaza lauk í gærkvöld án samkomulags.

Íbúar á Borgarfirði eystra eru beðnir sjóða neysluvatn. Vatnið er mengað af saurgerlum og E.coli gerlum.

Armand Duplantis bætti í gær sitt eigið heimsmet í stangarstökki á móti í Póllandi. Þetta er í tíunda skiptið sem Svíinn bætir heimsmetið í greininni.

Frumflutt

26. ágúst 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,