Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 31. júlí 2024

Óttast er aukin átök brjótist út fyrir botni miðjarðarhafs eftir einn af leiðtogum Hamas var ráðinn af dögum í Íran í nótt. Stjórnvöld í Íran segja það skyldu sína hefna fyrir dauða hans.

Rólegt hefur verið yfir skjálftavirkni á Reykjanesskaga og staðan er svipuð og hún var í gær. Gist var í nokkrum tugum húsa í Grindavík í nótt þótt lögreglan mæli eindregið gegn því.

Síðasti starfsdagur Guðna Th. Jóhannessonar í embætti forseta Íslands er í dag. Hann hefur boðað til ríkisráðsfundar á Bessastöðum eftir hádegi þar sem hann kveður ríkisstjórnina formlega.

Átta lögreglumenn eru alvarlega slasaðir eftir óeirðir í borginni Southport í Englandi í gær. Óeirðirnar hófust eftir orðróm um uppruna ungs manns sem varð þremur börnum bana í borginni á mánudag.

Íslenski makrílflotinn er allur farinn til veiða í Síldarsmugunni eftir fjögurra vikna veiði í íslensku lögsögunni Um sólarhrings sigling er á miðin í Smugunni.

Varaformaður íslenskrar málnefndar kallar eftir metnaði gagnvart þjóðtungunni í viðskiptalífinu. Það gangi ekki uppgjör fyrirtækja séu einungis birt á ensku.

Fyrsta lundapysja ársins er fundin í Vestmannaeyjum nokkuð fyrr en venjulega. Þjóðhátíðargestir eru beðnir um hafa augun opin fyrir pysjum í Herjólfsdal um helgina.

Frumflutt

31. júlí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,