Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 25. júlí 2024

Tvær unglingsstúlkur eru grunaðar um hrottalegt morð á fjórtán ára stúlku í Landskrona í Svíþjóð. Illa útleikið lík hennar fannst á þriðjudaginn.

Lagabreyting um fasteignarekstur hjúkrunarheimila er „aðför velferðarkerfinu“, mati Alþýðusambands Íslands.

Lítil ástæða er til hafa áhyggjur af þróun verðbólgunnar enn sem komið er, segir dósent í hagfræði. Verðbólgumarkmiði verði ekki náð fyrr en eftir tvö ár.

Joe Biden Bandaríkjarforseti segist hafa hætt við framboð til endurkjörs til þess sameina Demókrataflokkinn og bjarga lýðræðinu. Þetta kom fram í ávarpi forsetans til bandarísku þjóðarinnar.

Nýtt námsmat á koma í stað samræmdu prófana í grunnskólum landsins í haust. Mennta- og barnamálaráðherra segir það öflugara og betra verkfæri.

Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands telur geðþjónustu barna betur borgið þar en á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Olaf Scholz kanslari Þýskalands segist fullviss um geta leitt Jafnaðarmannaflokkinn inn í betri tíma. Aðeins þriðjungur flokksmanna vill hann verði áfram.

Þriggja daga tónlistarhátíðin Mannfólkið breytist í slím hefst á Akureyri í kvöld. Þar er lögð áhersla á fjölbreytta tónlist úr heimabyggð.

Frumflutt

25. júlí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,