Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 23. júlí 2024

Nýtt hættumat fyrir Reykjanesskaga verður gefið út í dag. Búist er við það taki mið af aukinni kvikusöfnun undir Svartsengi, þar sem land hefur risið undanförnu.

Kamala Harris varaforseti Bandaríkjanna hefur tryggt sér nægan stuðning til þess verða forsetaframbjóðandi Demókrata. Hún ætlar hefja kosningabaráttu sína strax í dag.

Vopnahlé gæti verið í burðarliðnum á Gaza. Þetta fullyrðir fréttastofa Associated Press og segir Benjamín Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels hafi gefið þetta til kynna. Samkomulagið myndi fela í sér frelsun ísraelskra gísla á Gaza.

Eina bíóið á Akureyri er til sölu. Eigandinn segist vilja leggja áherslu á starfsemi sína í Reykjavík.

Lögreglan í Bretlandi hefur áhyggjur af auknu ofbeldi gegn konum og segir áhrifavalda ýta undir kvenfyrirlitningu á samfélagsmiðlum.

Reykjavíkurborg vill þrjá og hálfan milljarð króna fyrir Perluna. Frestur til bjóða í hana rennur út í vikunni. Með Perlunni fylgja tveir tankanna sem hún hvílir á.

Skriðuhætta er mestu liðin hjá vegna vatnsveðurs sem gekk yfir Norðurland í gær. Fáir gistu á tjaldstæðum á Tröllaskaga í nótt og einu var lokað um tíma.

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sakar Reykjavíkurborg um tefja fyrir öryggismálum Reykjavíkurflugvallar, með því fella ekki tré í Öskjuhlíð.

Þrír dagar eru þar til Ólympíuleikarnir verða settir í París. Sigurbjörn Árni Arngrímsson, sérfræðingur RÚV, lofar spennandi og skemmtilegum leikum.

Frumflutt

23. júlí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,