128 missa vinnuna á Akranesi, í morgun var tilkynnt að fyrirtækið Baader Skaginn 3X yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Formaður verkalýðsfélags Akraness segir þetta sorgardag.
Stórsigur breska verkamannaflokksins blasir við í kosningunum þar í dag. Við verðum í beinni frá kjörstað í Lundúnum.
Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir að ekki verði lögð ný vatnslögn til Vestmannaeyja í sumar. Íbúum sé ekki rótt með lögnina laskaða og treysti á mildan vetur.
Maðurinn sem framdi hryðjuverk í aðdraganda gleðigöngunnar í Osló fyrir tveimur árum var í dag dæmdur í þrjátíu ára fangelsi. Þetta er þyngsti fangelsisdómur í sögu Noregs.
Reykjavíkurborg hefur verið dæmd til þess að greiða konu eina milljón króna í skaðabætur, vegna tafa á afgreiðslu á umsókn hennar um NPA-þjónustu. Konan beið í fimm ár eftir þjónustunni.
Bæjarfulltrúi Viðreisnar í Hafnarfirði ætlar að leggja fram tillögu um íbúakosningu um Coda Terminal-verkefnið í Straumsvík.
Viðræður um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar eru á lokametrunum. Búist er við að hann verði kynntur á næstu dögum.