Stórfelld netárás á Árvakur í gær er aðför að frjálsri fjölmiðlun í landinu, að sögn aðstoðarritstjóra Morgunblaðsins. Mikið af gögnum var tekið í gíslingu og lá við að blaðið kæmi ekki út í morgun.
Forsætisráðherra Ísraels er ekki tilbúinn til þess að semja við Hamas um varanlegt vopnahlé. Samtökin Save the Children telja að um 21 þúsund börn séu týnd á Gaza.
Lífskjör á Reykjanesi yrðu ekki söm færi orkuverið í Svartsengi undir hraun. Öll plön Almannavarna miða að því að koma í veg fyrir að það gerist.
Akstur rafskúta undir áhrifum áfengis er refsiverður samkvæmt breytingu á umferðarlögum sem Alþingi samþykkti á næstsíðasta degi þinghalds um helgina.
Minnst nítján lögreglumenn og nokkrir almennir borgarar voru drepnir í sjálfstjórnarhéraðinu Dagestan í suðurhluta Rússlands í gær.
Litlar upplýsingar fást um framgang rannsóknar lögreglu á Norðurlandi eystra, þar sem fimm blaðamenn eru sakborningar. Meira en ár er frá því að ríkissaksóknari óskaði þess að rannsókninni yrði hraðað.
Grásleppusjómenn mega ekki selja kvóta sem Alþingi samþykkti að úthluta þeim fyrr en að tveimur árum liðnum.
Framlag stjórnvalda vegna sameiningar Húnabyggðar og Skagabyggðar gæti orðið á bilinu 750 milljónir til einn milljarður króna. Sameining var samþykkt um helgina og tekur gildi fyrsta ágúst.