Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 13.maí 2024

Lögregla vill ekki tjá sig um rannsókn á frelsissviptingu og líkamsárás í heimahúsi í Reykholti í Biskpustungum. Maðurinn sem ráðist var á er með maltneskt ríkisfang. Hann var þvingaður úr landi í apríl en er kominn aftur.

Um þúsund mótmælendur eru enn fyrir utan þinghús Georgíu til mótmæla frumvarpi nýjum fjölmiðlalögum. Búist er við þingið afgreiði frumvarpið í dag.

Landris heldur áfram með sama hraða við Svartsengi og líkur eru á eldgos eða kvikuhlaup verði á hverri stundu. Sólstormur truflaði mælingar á landrisi um helgina þannig gögn bentu til þess hægt hefði á landrisi.

Afgreiða á útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra áður en Alþingi lýkur störfum í næsta mánuði. Yfir áttatíu stjórnarmál bíða afgreiðslu Alþingis.

Halla Tómasdóttir rúmlega tvöfaldar fylgi sitt í nýjustu könnun Prósents fyrir forsetakosningarnar, en þau sem mælst efst tapa öll fylgi. Kosningapróf RÚV er komið í loftið.

Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins segir lönd skilja betur eðli bandalagsins en Ísland vegna legu landsins í Norður-Atlantshafi. Hann þakkar Íslendingum fyrir framlag þeirra til heimsfriðar í þau 75 ár sem bandalagið hefur starfað.

Starfsmenn á dekkjaverkstæðum hafa haft í nógu snúast undanfarnar vikur. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur gefið út frá og með deginum í dag megi ökumenn á nagladekkjum búast við sektum.

Frumflutt

13. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,