Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 25. apríl 2024

Framkvæmdastjóri Landverndar segir frumvarp matvælaráðherra um lagareldi ekki mega verða lögum. Náttúruverndar- og dýravelferðarsjónarmið séu ekki höfð í heiðri. Firðirnir séu auðlind þjóðarinnar sem eigi passa, en ekki úthluta einkaaðilum endurgjaldslaust.

Bandaríkjastjórn krefst svara frá ísraelskum stjórnvöldum vegna fjöldagrafa sem hafa fundist við sjúkrahús á Gaza. Fleiri en hundrað voru handtekin í mótmælum stúdenta gegn stríðinu á Gaza víðs vegar um Bandaríkin í gær.

Framboðsfrestur til embættis forseta Íslands rennur út á hádegi á morgun. Níu hafa safnað tilskildum fjölda meðmæla eigin sögn og enn gæti bæst í hópinn. Landskjörstjórn tekur við framboðunum á morgun.

Forsætisráðherra Spánar íhugar hætta í stjórnmálum, eftir dómari ákvað hefja rannsókn á meintu spillingarmáli sem tengist eiginkonu hans. Ásökunin kemur frá þekktum öfgasamtökum á hægri væng stjórnmálanna á Spáni

Veðrinu á sumardaginn fyrsta er misskipt eftir landshlutum. Í blíðunni á Suðvesturhorninu hefja margir sumarið með tiltekt og garðvinnu og leggja leið sína í Sorpu.

Það skýrist í dag hvaða lið verða í 16-liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta. Umferðinni lýkur með leik Keflavíkur og Breiðabliks í kvöld.

Frumflutt

25. apríl 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,