Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 24. apríl 2024

Móðir sem er ákærð fyrir bana sex ára syni sínum í Kópavogi í febrúar hefur einnig verið ákærð fyrir tilraun til bana eldri syni sínum. Gæsluvarðhald yfir henni var framlengt í gær.

Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir þrátt fyrir minnkandi verðbólgu veruleg óvissa um hvort Seðlabankinn lækkar vexti í næsta mánuði. Verðbólga hefur ekki verið minni frá því í janúar 2022.

Íslenski náttúruverndarsjóðurinn telur frumvarp matvælaráðherra um lagareldi vinna gegn yfirlýstum markmiðum um aukna dýravelferð og náttúruvernd. Þetta séu svik. við áform sem voru kynnt þegar frumvarpið fór í samráðsferli.

Karl og kona eru í haldi lögreglu í Svíþjóð vegna gruns um hafa ráðið tveimur börnum bana í Södertälje. Þau eru forráðamenn barnanna.

Formaður neytendasamtakanna segir færa þurfi ábyrgð frá þeim sem taka smálán - yfir á fyrirtækin. Hann segir skyndilán hafi verið stofnanavædd.

Hávær umræða um ofmeðhöndlun og ofgreiningu á ADHD bitnar á þeim sem bíða aðstoðar. Formaður ADHD-samtakanna segir ekki megi hægja á greiningum því biðlistar séu langir.

Menntamálaráðuneytið skipar Fjarðabyggð endurtaka samráðsferli vegna uppstokkunar í skólastjórnum. Sveitarfélagið vill meðal annars leggja niður nær allar stöður aðstoðarskólastjóra. Ráðuneytið telur þetta meiriháttar breytingu sem kalli á samráð við skólaráð og foreldaráð.

Frumflutt

24. apríl 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,