Formaður VR segir að nokkur árangur hafi náðst í kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins á tólf klukkustunda fundi í gær. Enn er tekist á um samninga starfsmanna á Keflavíkurflugvelli - verkfall blasir við í næstu viku takist samningar ekki.
Nokkrar árásir hafa verið gerðar í landamærahéruðum í Rússlandi í morgun. Forseti Úkraínu lýsti því yfir í gærkvöld að staða Úkraínuhers á víglínunni væri betri í dag en hún hefði verið lengi.
Palestínskir umsækjendur um alþjóðlega vernd njóta ekki lengur forgangs við umsóknir um fjölskyldusameiningar. Dómsmálaráðherra segir það alltaf hafa átt að vera tímabundna ráðstöfun.
Grindvíkingar vilja njóta sömu kjara og fyrstu kaupendur fasteigna. Þeir segja nauðsynlegt að yfirvöld aðstoði enn frekar.
Húsnæði Heilsugæslu Garðabæjar skemmdist mikið í eldsvoða í síðustu viku. Starfsemin flytur tímabundið til Reykjavíkur.
Lögregla á Norður-Jótlandi rannsakar morð á þrettán ára gamalli stúlku í gærkvöld. Sautján ára drengur er í haldi, grunaður um ódæðið.
Ný bókmenntastefna stjórnvalda á að auka lestur, styrkja útgáfu og styðja við rithöfunda. Menningarráðherra vill tryggja stöðu íslenskra bókmennta til frambúðar.
Gísli Þorgeir Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, var í gærkvöld valinn besti leikmaðurinn í Þýskalandi árið 2023.