Grunur er um að tugir hafi sætt vinnumansali í máli sem tengist meðal annars veitingastöðunum Pho Vietnam og Wok On. Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir sex í dag.
Félagsmenn VR á Keflavíkurflugvelli leggja niður störf 22. mars verði verkfallsboðun samþykkt. Fagfélögin og Breiðfylking félaga í ASÍ hitta viðsemjendur sína í Karphúsinu í dag. Niðurstaða er í sjónmáli hjá Breiðfylkingunni.
Tveir þrettán ára drengir lentu í snjóflóði á skíðasvæðinu í Stafdal ofan Seyðisfjarðar á laugardag. Annar þeirra lá grafinn í flóðið í um 20 mínútur. Hættumati fyrir skíðasvæðið var aldrei lokið.
Donald Trump verður að óbreyttu forsetaefni Repúblikana í kosningum í nóvember. Nikki Haley, eini mótframbjóðandi hans, er sögð ætla að draga framboð sitt til baka seinna í dag.
Vinnumálastofnun og sveitarfélög á Suðvesturhorninu undirbúa komu 72 Gazabúa á næstu dögum. Sviðsstjóri hjá Vinnumálastofnun segir að sumir gætu þurft mikla þjónustu til að byrja með.
Meirihluti starfshóps leggur til að RÚV hverfi af auglýsingamarkaði og að styrkir til einkarekinna fjölmiðla falli niður við þá breytingu. Ráðherra segir að ekki standi til að fara þá leið.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins verður að öllum líkindum tilnefnd í starfið áfram. Flokkahópur Kristilegra Demókrata á Evrópuþinginu fundar nú í Rúmeníu og búist er við að von der Leyen verði formlega valin sem frambjóðandi hópsins á morgun.
Hafrannsóknastofnun fer nú yfir fréttir af loðnu sem berast frá skipum á miðunum við landið. Eitt fiskiskip er í startholunum, tilbúið að fara af stað til mælinga.