Tímamótakjarasamningar eru í vændum takist að ljúka samningum í þessari lotu, að sögn framkvæmdastjóra SA. Fullyrt er að deilendur hafi náð saman um forsenduákvæði í samningunum.
Lög um uppkaup á íbúðum Grindvíkinga voru samþykkt á Alþingi í nótt.
Úkraínumenn geta fengið vernd hér á landi í eitt ár í viðbót, bæði þeir sem eru komnir og þeir sem vilja koma. Tvö ár eru liðin frá innrás Rússa í landið.
Nýjar viðskiptaþvinganir Evrópusambandsins, þær þrettándu, vegna innrásarinnar snúa meðal annars að kínverskum og indverskum fyrirtækjum sem skipta við Rússa.
Þriggja daga sorg hefur verið lýst yfir í Valencia á Spáni eftir að fjórtán hæða blokk brann í gær. Vitað er að fjórir eru látnir. Fjórtán er enn saknað.
Tugir skelkaðra ferðalanga leituðu skjóls í Staðarskála í vonskuveðri í gærkvöld.
Far bandarísks einfafyrirækis er lent á tunglinu.
Það kostaði ríkið tvo milljarða að halda leiðtogafund Evrópuráðsins í fyrra. Helmingi meira en reiknað var með í upphafi.
Kvennalandslið Íslands í fótbolta leikur í dag fyrri umspilsleik sinn gegn Serbíu í Þjóðadeild Evrópu. Spennandi verkefni, segir þjálfari liðsins.