Stefnt er á að leyfa aukna atvinnustarfsemi í Grindavík í næstu viku, segir ríkislögreglustjóri, og koma þannig til móts við ákall atvinnurekenda. Fundað verður með þeim síðdegis í dag.
Fjármálaráðherra mælir fyrir frumvarpi um uppkaup á íbúðarhúsnæði Grindvíkinga á Alþingi í dag.
Ísraelsher hefur ráðist inn á spítala í Khan Younis á Gaza og sakar Hamas um að halda gíslum þar.
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins er bjartsýn á að ná kjarasamningi við verkalýðshreyfinguna. Sáttasemjari hefur ekki boðað til fundar í deilunni.
Deilur á Bandaríkjaþingi um stuðning við Úkraínu hafa þegar komið niður á getu Úkraínumanna til að verjast innrás Rússa að dómi framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Ísland og Litáen ætla að leiða samstarf um sprengjuleit og sprengjueyðingu í Úkraínu.
Niðurstöður loðnumælinga suðaustur af landinu gefa enn ekki ástæðu til mikillar bjartsýni. Sveitarfélög sem treysta á loðnuna geta orðið af miklum tekjum ef ekkert veiðist á vertíðinni.
Foreldrar barna sem beitt voru ofbeldi í grunnskólanum í Borup í Danmörku segjast engin svör hafa fengið á fundi með bæjaryfirvöldum í gær.
Úrslitavika bikarkeppninnar í blaki hefst í dag með undanúrslitum í kvennaflokki í Digranesi í Kópavogi. Þar á KA titil að verja.