Framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar segir mál fatlaðs hælisleitanda frá Írak fordæmisgefandi og mjög mikilvægt með tilliti til réttinda fatlaðra; mikið vanti upp á að þeirra sé gætt í úrskurði kærunefndar útlendingamála.
Gaza svæðið er áfram í herkví og öll landamæri lokuð. Talsmaður palestínskra heilbrigðisyfirvalda segir viðbúið að mannfall aukist þegar lækningavörur, lyf og eldsneyti á heilbrigðisstofnunum klárast.
Flug um Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvöll hefur legið niðri í dag. Óvíst er með framhaldið en vindur verður nálægt viðmiðunarreglum síðdegis að sögn veðurfræðings. Veðrið nær hámarki stuttu eftir hádegi.
Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir atvinnulífið að einhverju leyti enn í afneitun þegar kemur að umhverfismálum. Stjórnvöld, sem vinni að aðgerðum í samvinnu við atvinnnulífið, takist á við vandann með hangandi hendi.
Nýr fjármálaráðherra segir að skapa verði trú á að hægt verði að ná niður verðbólgu. Það hjálpi verkalýðshreyfingunni að sannfæra sína félagsmenn um að háar krónutöluhækkanir í kjarasamningum skili ekki endilega mestum árangri.
Starfandi framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur segir að tilkynningum um að börn og ungmenni beiti ofbeldi fari fjölgandi.