Einn lést í bruna við Funahöfða í Reykjavík í gær. Eldsupptök eru ókunn. Brunavarnir í húsinu voru viðunandi, að mati yfirmanns hjá slökkviliðinu.
Erlend ríki reyna að beita áhrifum sínum til að koma í veg fyrir að átök Ísraels og Hamas breiðist út um Miðausturlönd. Allsherjarleiðtogi Írans segir ekkert geta stöðvað óvini Ísraels ef loftárásir á Gaza halda áfram.
Maður sem skaut tvo Svía til bana í Brussel í Belgíu í gær lést í skotbardaga við lögreglu í morgun. Forsætisráðherra Svía segir drápin hryðjuverkaárás sem beindist að Svíþjóð.
Allt sem biskup hefur gert frá því í fyrrasumar er markleysa, segir lögmaður. Úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar segir að biskup hafi skort hæfi eftir að skipunartími hennar rann út.
Afar ólíklegt er að pólska stjórnarflokknum takist að mynda meirihluta. Líklegast er að Donald Tusk fái umboð til að mynda nýja stjórn.
Matvælaráðherra segir ekki tímabært að ræða stöðu sína í ríkisstjórninni á meðan álit umboðsmanns Alþingis vegna kæru Hvals há eff liggur ekki fyrir. Hún segir að skoðanir annarra stjórnarliða á því hafi engin áhrif á sig.
Lagt er til að heilbrigðiseftirlit verði flutt frá sveitarfélögum til ríkisins í nýrri skýrslu um eftirlit með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum.
Hagkerfið færist smám saman í átt að betra jafnvægi samkvæmt Hagspá Landsbankans, Hagfræðingur bankans segir að hátt vaxtastig dragi úr einkaneyslu og fjárfestingu.
Ferðaþjónustufyrirtæki á Borgarfirði eystra hafa sótt neysluvatn á nálæga sveitabæi í hálfan manuð vegna gerlamengunar í vatnsbólinu. Talið er að óhreinindi hafi komist í vatnsveituna vegna jarðvegssigs.