Bogi Ágústsson fjallaði einkum um bresk stjórnmál í Heimsglugganum. Þar er sérstök staða uppi; pólitísk inneign forsætisráðherrans er uppurin, en hann verður þó í embætti í líklega tvo mánuði í viðbót. Bogi fór yfir sviðið. Hann ræddi líka um umfangsmiklar árásir Rússa á Úkraínu.
Við töluðum um gervigreind, og beindum sjónum okkar sérstaklega að menntakerfinu. Þróunin neyðir okkur til að horfast í augu við grundvallarspurningar eins og hvað menntun sé í raun og veru og hvað þurfi að kenna og þjálfa í manneskjum allt frá leikskóla og upp í háskóla. Þetta segir Magnús Smári Smárason, verkefnastjóri gervigreindar hjá Háskólanum á Akureyri, sem við ræddum við.
Svo flettum við nýju riti, Súlum - tímariti Sögufélags Eyfirðinga. Við stöldruðum við eina grein, eftir Rafn Sveinsson tónlistarmann. Lesið var upp úr greininni og tónlist leikin.
Tónlist:
Haukur Morthens og hljómsveit hans - Bátarnir á firðinum.
Dolly Parton, Loretta Lynn, Tammy Wynette - Wouldn't it be great.
Blood, Sweat & Tears - You've made me so very happy.
Rafn Sveinsson, Óskar Pétursson - Mexikó.
Þorbjörg Ingvadóttir, Laxar - Heyr mitt ljúfasta lag : tangó.
Óðinn Valdimarsson, Atlantic-kvartettinn, Helena Eyjólfsdóttir - Ég skemmti mér.