Enn gýs í nágrenni Grindavíkur og í gær var hafist handa við að hækka enn frekar varnargarða til reyna að forða því að hraun flæði yfir þá. Grindvíkingar eru margir enn í mikilli óvissu um framtíðina, bæði hvað varðar búsetu og atvinnu. Við ræddum við Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, um málefni Grindvíkinga vítt og breitt.
Við fjölluðum um fámennasta sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu og það sem hefur hvað mesta sérstöðu. Í Kjósarhreppi búa um 300 manns; landbúnaður er aðalatvinnuvegurinn og náttúrufegurðin mikil. Þorbjörg Gísladóttir sveitarstjóri sagði okkur frá lífinu og tilverunni í Kjós.
Fátt, ef nokkuð, er betra en góð pylsa – segja pylsuunnendur. Sigurður Haraldsson pylsugerðarmaður í Pylsumeistaranum kann aldeilis tökin á pylsunum; hann varð Kjötmeistari ársins í fagkeppni meistarafélags kjötiðnaðarmanna sem fram fór á dögunum. Sigurður kom til okkar og við spjölluðum um pylsur og pylsugerð. Það á að segja pylsur, ekki pulsur, segir Sigurður.
Tónlist:
King, Ben E. - Stand by me.
Jens Hansson, Haraldur Þorsteinsson, Ásgeir Óskarsson, Björgvin Gíslason, Hjörleifur Valsson Fiðluleikari - Á fálkaslóð.
Karlakór Kjósverja - Söngur sáðmannsins.
Karlakór Kjósverja - Sumar er í sveitum.
Morrison, Van - Moondance.