Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, var fyrsti gestur Morgunvaktarinnar í dag og við héldum áfram umfjöllun um áformuð kaup Landsbankans á TM. Síðan Þórður var hér síðast hefur bankaráð Landsbankans birt upplýsingar sem stangast á við upplýsingar Bankasýslunnar. Við fjölluðum líka um kaupmátt ráðstöfunartekna sem heldur áfram að dragast saman, og um það hvað það kostar að bjóða sig fram til forseta Íslands.
Berlínarspjall var á sínum stað og Arthúr Björgvin Bollason sagði meðal annars frá nýsamþykktum lögum um kannabisneyslu, óbeit atvinnurekenda á AfD flokknum og svo töluðum við svolítið um fótbolta og áhrif gengis þýska landsliðsins á þjóðarsálina.
Nokkur ár eru frá því að tekið var upp styrkjakerfi í námslánum hér á landi og nú stendur til að sníða af vankanta sem komið hafa í ljós, samkvæmt nýju frumvarpi. En stúdentar og fleiri hafa gagnrýnt frumvarpið, ekki síst vegna þess hversu litlu á að breyta. Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur sérstaklega lýst yfir vonbrigðum yfir því hvernig staðið er að málum. Rakel Anna Boulter, forseti Stúdentaráðs HÍ, og Gísli Laufeyjarson Höskuldsson lánasjóðsfulltrúi, komu til okkar.
Tónlist:
Whiteman, Paul - Mississippi Mud.
Brimkló - Herbergið mitt.
Reinhard Mey - Über den Wolken.
Steve Miller Band - The Joker (bonus track wav).