Bogi Ágústsson ræddi erlend málefni eins og vanalega á fimmtudögum. Fyrst á dagskrá var fundur um norrænt samstarf í Norræna húsinu í gær, þar sem óánægja Grænlendinga með stöðu sína í samstarfinu var einkum rædd. Einnig var fjallað um kosningabaráttuna í Bretlandi en kosið verður til breska þingsins í byrjun júlí og um Mama Cass söngkonu en lífseig saga um að hún hafi látist (fyrir 50 árum) við það að samloka stóð í henni hefur verið hrakin. Mama Cass lést úr hjartaáfalli.
Leikið var brot úr hlaðvarpsþættinum Kjóstu betur sem þrjú ungmenni sem nú kjósa í fyrsta sinn sjá um, þau Anna Sonde, Embla Bachmann og Jörundur Orrason. Leikið var viðtal við Jóhann Gunnar Arnarsson sem var staðarhaldari á Bessastöðum í tíu ár.
Framhaldsskólarnir brautskrá útskriftarnemendur þessa dagana. Rætt var við Sigríði Huld Jónsdóttur, skólameistara Verkmenntaskólans á Akureyri, um lífið í VMA og skólamál almennt.
Tónlist:
Heima er best - Sigurður Flosason,
Undir Stórasteini - Ragnar Bjarnason,
Karl sat undir kletti - Þokkabót,
Dream a little dream of me - Mama Cass,
This is your land - Harry Belafonte.