Stjórnmál og kosningar voru á dagskrá hjá okkur í dag. Starfsstjórn er við völd í landinu. Samkomulag um framhald samstarfs stjórnarflokkanna hefur ekki náðst. Við ræddum stöðuna í stjórnmálunum með Birgi Guðmundssyni stjórnmálafræðingi og svo alþingismönnunum Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formanni Viðreisnar, og Andrési Inga Jónssyni, þingmanni Pírata.
Við fjölluðum líka um kosningakerfið sem notast er við í forsetakosningum. Sumir telja rétt að breyta því og efna til síðari umferðar svo forseti sé kjörinn með yfir helmingi atkvæða. Við ræddum þetta og ýmislegt annað í tengslum við kosningakerfi við Þorkel Helgason stærðfræðing.
Og stjórnmál í Evrópu voru líka á dagskrá; Björn Malmquist talaði frá Brussel og sagði meðal annars frá nýafstöðnum afmælisfundi Nató, forsetakosningum í Slóvakíu og Evrópuþingskosningunum í sumar.
Tónlist:
Magnús Jóhann Ragnarsson, GDRN - Hjarta mitt.
Baker, Chet, Tómas R. Einarsson - Don't Blame Me.
Frumflutt
8. apríl 2024
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Morgunvaktin
Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.