Kvennaverkfall um land allt, dönsk málefni og fingrarím
Við fjölluðum í dag um kvennaverkfallið í gær. Við hringdum til Húsavíkur og Víkur í Mýrdal og könnuðum hvernig gekk, forvitnuðumst um ávörp og annað, heyrðum af þátttöku, áhrifum á samfélögin og þar fram eftir götum. Aðalsteinn Baldursson, formaður Framsýnar í Þingeyjasýslum, og Nichole Leigh Mosty, leiksólakennari í Vík, sögðu frá.
Borgþór Arngrímsson hjá okkur og segir okkur frá því sem er efst á baugi í Danmörku. Stjórnmál, óveður og konunglegt afmæli eru meðal annars á dagskrá.
Í síðasta hluta þáttarins reyndum við að átta okkur á grunnatriðum þeirrar listar að reikna út almanakið með fingrunum. Við fjölluðum sem sagt um fingrarím. Gunnlaugur Björnsson stjarneðlisfræðingur og höfundur Almanaks Háskóla Íslands, fræddi okkur um það.
Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Tónlist:
Jones, Norah - Come away with me.
Stína Ágústsdóttir - Vorið og tómið.
Bonga - Kaxexe.
Vildandens sang - Harmonika drengerne
Frumflutt
25. okt. 2023
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Morgunvaktin
Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.