Í Heimsglugganum ræddi Bogi Ágústsson m.a. um leiðtogafund ESB sem hefst í Brussel í dag. Búist er við að samþykkt verði að hefja aðildarviðræður við Úkraínu. Einnig var fjallað um þingkosningar í Serbíu á sunnudaginn og forsetakosningarnar í Finnlandi í Janúar. Alexander Stubb, fyrrverandi forsætis- og fjármálaráðherra, nýtur mests fylgis í skoðanakönnunum.
Anna Sigríður Ólafsdóttir, prófessor í næringarfræði, ræddi um jólamat og hollostu. Ráð dagsins er að gæta hófs í allri neyslu á aðventunni og um hátíðarnar.
Kristín Davíðsdóttir hjúkrunarfræðingur talaði um málefni og aðstæður fólks sem glímir við fíkn. Hún vinnur eftir hugmyndafræði um skaðaminnkun en miklir fordómar eru í samfélaginu í garð fólks með fíkn.
Tónlist:
Ég ræð ekki við mig - Sálgæslan,
Ég kveð þig ást - Stína Ágústsdóttir,
El condor pasa - Simon og Garfunkel,
Jólasveinar 1 og 8 - Stórsveit Reykjavíkur,
Bye bye blakcbird - Miles Davis.
Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Eyrún Magnúsdóttir.