Morgunvaktin

Ráðningar sveitarstjóra, spilling í Úganda og staðan í Eyjum

Verið er mynda meirihluta í sveitarstjórnum víða um landið þessa dagana. Sums staðar verða stjórnmálamenn, oddvitar, sveitar-, bæjar- eða borgarstjórar. En annars staðar hefur skapast hefð fyrir því ráða utanaðkomandi sveitarstjóra í vinnu. Hvernig er því háttað og hvaða reglur gilda? Þetta hefur Ingimar Ingimarsson sviðsstjóri hjá Húnaþingi vestra skoðað vel, og sagði okkur frá.

Þórhildur Ólafsdóttir sagði okkur tíðindi frá Úganda. Við höfum undanfarið heyrt af spillingu og afleiðingum hennar í lögreglu- og dómskerfinu. Í dag heyrðum við af spillingu í pólitíkinni. Við ræddum líka um Ebólu sem hefur greinst á nýjan leik í Úganda eins og á fleiri stöðum í Afríku.

Meirihluti Eyjamanna samþykkti í íbúakosningu kannaður verði möguleikinn á uppbyggingu á svæði sem fór undir hraun í gosinu fyrir rúmum fimmtíu árum. Við forvitnuðums um þau mál og ræddum líka um samgöngumálin og erfiðleikana sem þeim vandræðum tengjast með Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum.

Tónlist:

Johnny Nash - I can see clearly now.

Cesaria Evora - Sodade.

Mugison, Blúskompaníið - Ég trúi á þig.

Birt

20. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,