Fjallað var um stöðuna í stjórnmálunum eftir stjórnarslit forsætisráðherra á sunnudag. Friðjón Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og Halla Gunnarsdóttir, félagi í VG, fóru yfir stöðuna.
Síðar í þættinum fór Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar, yfir þá fresti sem gilda miðað við að gengið verði til kosninga seint í nóvember. Ljóst er að hafa þarf hraðar hendur við frágang framboðslista.
Í Berlínarspjalli fjallaði Arthur Björgvin Bollason meðal annars um vaxandi óþol í Þýskalandi gagnvart flóttamönnum. 3,5 milljónir flóttamanna eru í landinu, flestir frá Úkraínu og Sýrlandi. Finnst mörgum Þjóðverjum nóg um. Þá sagði Arthur frá fundi þar sem rætt var um hvaða augum Þjóðverjar líta Norðurlöndin og Norðurlandabúa.
Sjáum hvað setur - Moses Hightower,
Lífsgleði - Moses Hightower,
Footprints - Kvintett Miles Davis.
Frumflutt
15. okt. 2024
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Morgunvaktin
Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.