Velferð iðkenda í íþróttum, framtíð tónlistarskóla og kosningar á Indlandi
Indversk stjórnmál voru einkum til umræðu í Heimsglugga dagsins. Kosningar í þessu fjölmennasta ríki heimsins hefjast í næstu viku, en það tekur nokkrar vikur að kjósa þar. Bogi Ágústsson ræddi við Jón Orm Halldórsson alþjóðastjórnmálafræðing um stöðu stjórnmálanna á Indlandi upp úr klukkan hálf átta.
Verndun og velferð barna, unglinga og afreksfólks í íþróttum er til umfjöllunar á ráðstefnu sem fram fer á föstudag og laugardag. Til okkar kom Kristín Birna Ólafsdóttir sérfræðingur hjá ÍSÍ og fyrrverandi afreksíþróttakona í frjálsíþróttum til að ræða hvernig hægt er að hlúa betur að íþróttaiðkendum.
Í síðasta hluta þáttarins voru málefni tónlistarskóla til umfjöllunar. Um helgina fer fram Nótan, uppskeruhátíð tónlistarskólanna, en hátíðin er haldin um landið allt, enda 80 tónlistarskólar dreifðir alls staðar á landinu. Anna Rún Atladóttir, skólastjóri Tónmenntaskólans í Reykjavík og formaður samtaka tónlistarskóla í Reykjavík, var gestur okkar í síðasta hluta þáttarins og við ræddum um samfélagið og stöðuna í tónlistarskólum.
Can't buy me love - The Beatles.
Vorið og tómið - Stína Ágústsdóttir.
Gerum okkar besta - Snorri Helgason.
Let Me Sleep - Anna Sóley.
Frumflutt
11. apríl 2024
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Morgunvaktin
Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.