Morgunvaktin

Hagstjórn og hamingja

Við ræddum um hagfræði og hvaða ráð hún hefur við verðbólgu. Og veltum líka fyrir okkur frammistöðu íslenskra ráðamanna í hagstjórn undanfarinn aldarfjórðung eða svo. Már Mixa dósent við Háskóla Íslands kom í þáttinn.

Alþjóðlegi dagur hamingjunnar er í dag. Hann er haldinn ár hvert, og hefur verið frá 2013, til minna okkur á mikilvægi hamingjunnar í lífinu. Íslendingar eru næsthamingjusamasta þjóð í heimi samkvæmt alþjóðlegri skýrslu þar um - við spjölluðum um hamingjuna við Kristínu Lindu Jónsdóttur sálfræðing.

Umfjöllun um sígilda tónlist var á sínum stð, við endurlékum spjall við Magnús Lyngdal um Editu Gruberova.

Tónlist:

Jens Lisberg - Eg havi keypt mær bil = Hello Mary Lou.

Jens Lisberg - Mamma = Litli tónlistarmaðurinn færeysku].

Nýdönsk - Framtíðarvið.

Hljómar - Lífsgleði.

Birt

20. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,