Sænski fáninn verður dreginn að húni við höfuðstöðvar Atlantshafsbandalagsins eftir nokkrar klukkustundir, eftir að formlega innganga Svíþjóðar í varnarbandalagið gekk í gegn í síðustu viku. Við ræddum um inngöngu Svía, umræðuna þar í landi og stjórnmálin við Gunnhildi Lily Magnúsdóttur stjórnmálafræðing í Malmö.
Við ræddum um Evrópuþingskosningarnar í júní við Björn Malmquist fréttamann og Dóru Tynes lögmann. Nú þegar tæpir þrír mánuðir eru í kosningar hafa kannanir sýnt að hægriflokkar og harðlínu-hægriflokkar séu að sækja í sig veðrið. Hvað þýðir það og hvaða áhrif hefði slík sveifla á Evrópusambandið?
Og í síðasta hluta þáttarins: Það færist í aukana að alls kyns fólk deili upplýsingum og ráðum um matvæli og mataræði á samfélagsmiðlum, og ráðin eru út og suður. Til dæmis sáu næringarfræðingar sig nýlega knúna til að grípa til varna fyrir hafragrautinn, og það er bara eitt af fjölmörgum dæmum. Ætli sé margt fólk hreinlega farið að upplifa kvíða vegna allra þessara misvísandi upplýsinga um hvað sé hollt og æskilegt og hvað ekki? Við spurðum Heiðdísi Snorradóttur næringarfræðing að því.
Tónlist:
Prysock, Arthur - The folks who live on the hill.
Eilish, Billie - What Was I Made For.
Eilish, Billie - No Time To Die.
Melchor, Adam - i'm not okay
Una Torfadóttir - Um mig og þig.