Morgunvaktin

Heimsglugginn, skógrækt og uppbygging hjúkrunarheimila

Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann og fjallaði um nýja skýrslu um þróun lýðræðis í heiminum. Frjálslynt lýðræði er aðeins til staðar í litlum hluta heimsins, og öfugþróun er verða. Bogi ræddi líka um grænlensk stjórnmál og bandarísk.

Skúli Skúlason vistfræðingur og fyrrverandi rektor Háskólans á Hólum var í símanum frá ráðstefnu helstu sérfræðinga landsins í skógrækt. Hann sagði okkur frá tegundavali í skógrækt og ýmsu athyglisverðu.

Í síðasta hluta þáttarins var rætt um áform stjórnvalda um mikla uppbyggingu á hjúkrunarrýmum á næstu árum. María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistu, ræddi þau og um stöðuna eins og hún er í dag. Það er ekki nóg byggja rými, það þarf huga þeim sem fyrir eru og mönnun verður ein stærsta áskorunin, rétt eins og hún er þegar.

Tónlist:

Todmobile - Brúðkaupslagið.

Sara Mjöll Magnúsdóttir - Heima.

Náttúra - My Magic Key.

Silva and Steini - Room With A View.

Birt

19. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,