Það styttist í forsetakosningarnar, og alltaf meira eftir því sem dagarnir líða. Forsetaefnin hafa nú nítján daga til að sannfæra okkur um að kjósa sig. Margir virðast reyndar þegar ráðnir - ef marka má yfirlýsingar á samfélagsmiðlum og blaðagreinar - en aðrir eiga eftir að gera upp við sig hvar krossinn eða X-ið lendir. Við ræddum um forsetaembættið í dag; um valdsvið og áhrifamátt. Já og um hugtök á borð við sameiningartákn og öryggisventil. Guðmundur Hálfdanarson prófessor spjallaði við okkur.
Og svo er það riðan. Matvælaráðherra ætlar að skera upp herör gegn henni. Og kominn tími til, kann einhver að segja. Fyrir liggja drög að landsáætlun um riðuveikilaust Ísland. Skapar hún aðstæður til að létta jafnt og þétt íþyngjandi höftum sem hvílt hafa á sauðfjárbændum í um 80 ár, segir í kynningu. Trausti Hjálmarsson, sauðfjárbóndi og formaður Bændasamtakanna, sagði frá þeim aðgerðum sem grípa á til.
Nýútskrifuðum kennurum hefur fjölgað verulega hér á landi síðustu ár, allt frá því að ráðist var í átaksverkefni um nýliðun þeirra árið 2019. Átaksverkefnið var til fimm ára og því lýkur því nú í vor. Og hvað gerist þá? Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti menntavísindasviðs Háskóla Íslands, kom til okkar og ræddi þessi mál.
Tónlist:
Ingibjörg Smith - Við gengum tvö.
Kári Egilsson - Hringhenda.
Armstrong, Louis, Fitzgerald, Ella, Hljómsveit - It ain't necessarily so.